Rúsínu og kanil Næturgrautur!

SAMSUNG CSC
1/3 bolli ósæt eplamús/mauk (t.d. þessi: heimagerð)
1 bolli hafrar
1 msk byggmjöl
1 msk chia fræ
2 msk rúsínur
1/2 tsk kanill
1 bolli soðið vatn

Toppað með:
1 msk grískri jógúrt
Kókosflögum eða kókosmjöli
Vínberjum

Mjólk að eigin vali

Kvöldinu áður er allt hráefnið sett í plast ílát (með loki) og hrært saman. Soðna vatninu einnig hrært vel saman við. Lokið sett á og látið standa í ísskáp yfir nótt (a.m.k. 4 tíma)

Um morguninn er hrært vel í grautnum og hann settur í skál, mjólk að eigin vali hellt yfir grautinn (magn eftir eigin þörfum)
Toppað með grískri jógúrt, kókos, vínberjum og etv. smá kanil.

SAMSUNG CSC

Færðu inn athugasemd