Hressandi og mettandi smoothie sem rann ljúft niður í morgunsárið.
1 bolli lífræn kókosmjólk/létt kókosmjólk
1 mangó, skorið í bita
1 banani, skorinn í bita
1 msk kókospálma sykur (eða önnur sæta, t.d. hlynsíróp, döðlur, stevía, hunang eða hrásykur)
1 msk (extra virgin) kókosolía
Handfylli ísbitar
1 msk vanillu extract
1/2 tsk ósætar kókosflögur eða kókosmjöl, ef vill
Allt sett í blandara og maukað vel saman. Berist strax fram.