Einfaldur og góður næturgrautur..
Fyrir 2
1 bolli haframjöl
1 bolli mjólk að eigin vali (notaði haframjólk)
1 banani, stappaður
1/2 – 1 tsk möndludropar
2 lúkur þurrkuð ber.. t.d. bláber og gojiber
smá salt
Blanda vel saman og geyma í lokuðum umbúðum í ísskáp yfir nótt. Berið fram með möndlum og ferskum berjum.