Pæ botn:
5 dl hveiti
250g kalt smjör
1 tsk salt
4 msk kalt vatn
Smjörið skorið í teninga og það unnið saman við hveitið, saltið og vatnið. Deiginu er þrýst í bökuform eða kökuform, botninn stunginn nokkrum sinnum með gaffli og forsteikt í ca. 10 mínútur við 200°c. Einnig hægt að nota tilbúinn pæbotn.
Fylling:
800 gr. Kjúklingahakk eða blanda af nautahakki og svínahakki
Pottagaldurs Krydd lífsins eða taco krydd
Salt og Pipar
1 krukka salsa sósa (styrkleiki að eigin vali)
1/2 dós 10% sýrður rjómi
1/2 dl Maizenna
1 dl kalt vatn
Rifinn ostur
Hakkið steikt á pönnu með smá olíu/smjöri og kryddað vel með kryddi lífsins og salti og pipar. Þá er salsasósan og sýrði rjóminn hrærður saman við og látið malla í nokkrar mínútur. Vatn og maizenna hrist vel saman og bætt útí. Þessu er blandað vel saman og því næst tekið af hellunni.
Hakkinu er hellt yfir forsteikta pæ botninn.
Pæið er því næst hitað í 200°c heitum ofninum (osturinn er settur á seinna) í ca. 20 mínútur og svo er ostinum stráð yfir og hitað í 10-15 mínútur til viðbótar.
Gott að bera fram Taco pæ með fersku salati, sýrðum rjóma og nachos.